Jæjja, þá eru páskarir yfirstaðnir og mikið rosalega er ég ánægð
með það. Mínir páskar eru búnir að fara í að éta pizzu og núðlur.
Fyllerí og Vinnu. Tala nú ekki um það að ég fékk sko engan góðan
páskamat og ekkert páskaegg
Á þriðjudaginn settist ég niður eftir vakt með henni Birgit Ósk,
við fengum okkur hvítvín og spjölluðum um lífið og tilveruna. Meðal
annars hvernig það er að vera einhleypur eftir svona langt samband
og svona. Alveg ótrúlegt hvað það getur verið gott að heyra frá
reynslu annarra og gott að geta talað við einhvern sem virkilega
segir manni hreynt út hvernig hlutirnir eru. Ekkert að skafa ofan
af því. Æ hún Birgit er æði
Búin að hjálpa mér mikið.
Miðvikudagurinn var staffadjamm þar sem skellt var í sig Tópas,
Ópal, Tequila, Beep, Bjór, Jager og fleiru. Kvöldið endaði með því
að ég sat inni í 10-11 með Fjólu, ég að borða gúrku og hún að
drekka kaffi og borða nammið sitt sem hún keypti fyrir900krónur.
Einhverra hluta vegna keypti ég mér 6 tómata 1 gúrku og
karamellubúðing
Á fimmtudaginn fór ég með Garðari Inga uppí bústað rétt hjá
Blönduósi. Við fórum á hjólinu hans og djöfull sem það var gaman
maður! eða alveg þartil hjálmurinn minn fór að bila. Glerið á
hjálminum bara þaut upp og ég alveg eins og hamstur í framan,
kynnarnar á fullu maður flappsandi fram og til baka... djísúss
kræsturinn maður!
Við fengum okkur bjór og skelltum okkur í
heitapottinn þarsem ég náði að slasa mig á báðum fótum. Lennti með
vinstri fótinn ofan í holu og missteig mig, ætlaði síðan að bjarga
mér með að stíga í hægri en ekki vildi betur til en að ég steig
beint ofan á brotið glas! Heppna ég!
Á sunnudaginn kíktum við Stína síðan til Garðars og fengum okkur
smá bjór og ég endaði með því að krassa þar. Djöfull áttu þæginlegt
rúm Garðar!
Takk fyrir góða páska, góða fólk