Gaggý
Dimmitering
Iðnskólann í Hafnarfirði. Dagurinn byrjaði snemma með fyrirpartýum
sem hver deild hélt fyrir sig. Flest partýanna byrjuðu kl.06:00 um
morguninn. Partý útstillingadeildarinnar var haldið heima hjá mér á
Suðurvanginum. Þess má geta að eg var að vinna kvöldið áður, frammá
nótt og svaf þar af leiðandi í einhverjar 40 mínútur. Við
stelpurnar tókum okkur til hér heima, fordrykkurinn var "sex on the
beach". Þar sem ég bý nánast við hlið skólans þá gengum við bara
yfir, vorum komnar þangað í morgunmat um klukkan 7:30, fengum þar
dýryndis morgunverð að hætti Sigga. ÞAð voru nú ekki allir sem
skiluðu sér þangað. Sum fyrirpartýin voru víst helvíti hressileg.
Þar má nefna smíðadeildina sem virtist ekki vera alvega jafn vel
vakandi og við hin. Enda fækkaði ört í þeim hóp. Hressir strákar
þar á ferð. Svo var eitthvað trallað í garðinum og haldið partý í
einum bústaðanna sem smíðadeildin hafði smíðað á lóðinni. Þar sem
ein okkar forfallaðist ákváðum við að skella bara Möggu kennara í
búning líka. djöfull var hún töff í honum marr! í Hádeginu var svo
grillpartý í garðinum og að sjálfsögðu hin heimsfræga bílferð með
skólastjóranum. Að mínu mati var það hápunktur dagsins. Það er
semsé hefð í skólanum að skólastjórinn tekur einn túr með
útskriftarnemum á eldgömlum bíl sem að sumra mati gæti jafnvel
talist lífshættulegur þar sem eldglæðingarnar standa út úr pústinu
á honum þegar bíllinn sprengir af fullum krafti. Það er líka eins
gott að standa í töluverðri fjarlægð frá pústinu og halda vel fyrir
eyrun rétt á meðan honum er startað. Þess má geta að móðir
skólastjórans tók bílpróf á þennan sama bíl fyrir um 80 árum
síðan:o Yfir miðjan dag skiptust leiðir okkar stúlkna, einhverjar
fóru í mat á Glaumbar um kvöldið, einhverjar lögðu sig til þess að
vera til í slaginn fyrir kvöldið og svo var það hetjan hún
Ingibjörg sem bara skellti sér í ræktina! Skemmtilega skrítin sú
stúlka;) Seinnipartinn hittumst við Ingibjörg hérna heima, fórum í
drykkjuleiki á krítatöfluveggnum mínum og skelltum okkur svo í
bæjinn. Þar hitti ég Jónatan sem átti 25ára afmæli sama dag. við
gerðum dauðaleit af bar sem vildi gera fyrir okkur hotshot en það
hafði ekkert upp á sig. Við enduðum síðan á Sólon. Þar hitti ég
Samma, Ívar, Ara, Alla, Hrafnkel og að mig minnir Ingó, Matta og
Sigga. Ég var síðan ekki komin heim fyrr en um 8 um morguninn að
kl.08:00 að morgni fimmtudags. Og þegar upp er staðið var þetta
bara æðislegur sóiahringur. Gott djamm með góðu fólki. Takk fyrir
My name is Moses, I call from Uganda
þremur vikum fór ég að fá skrítin sms úr einhverju furðulegu
útlendu númeri. (256752647373) Í þeim stóð eitthvað "hi hows life?"
og þegar ég ekki svaraði þá "hei! pleae talkt to mi" I dont meen no
harm" og eikkað. Það skal tekið fram að enskan hjá gaurnum er ekki
alveg í lagi sko. Þar sem Knútur hafði farið til Svíþjóðar deginum
áður og við frekar nýhætt saman, þá bjóst ég við að þetta væri hann
og sendi til baka á íslenku. Þá kemst ég að því að þetta er semsagt
ekki knútur heldur eikkur gæjji sem segist heita Moses:S Í
kjölfarið fæ ég skrilljón sms og email. Og svo í dag er hann búinn
að hringja í mig fjórum sinnum. Hann byrjaði sko rúmlega 6 í
morgun. Og hann bara "hello?! my name is Moses and I call from
Uganda" Ég: "and how dit you get my number?" hann: "yes, my name is
Moses. I got youre name and number from some catalogue here..... og
svo varð síminn minn batterislaus!hvað er málið!! Annað hvort er
einhver þarna úti sem nennir að spila sama djókinn í nokkrar vikur
og er gjörsamlega í rugglinu. Eða ég er hreinlega með stalker á
bakinu! hvort heldur sem það er þá er það jafn hrikalegt marr! Og í
hvaða andskotans blaði getur maðurinn hafa fengið nafnið mitt,
strippbeibu í klámblaði í Uganda. Váá´hvað það væri vandræðalegt!
Og það er eins gott að það hafi ekki einhverjir bjánar, vinir mínir
því hver þetta er. Annars var hann Maggi minn að leita í
Páskablogg
með það. Mínir páskar eru búnir að fara í að éta pizzu og núðlur.
Fyllerí og Vinnu. Tala nú ekki um það að ég fékk sko engan góðan
við fengum okkur hvítvín og spjölluðum um lífið og tilveruna. Meðal
annars hvernig það er að vera einhleypur eftir svona langt samband
og svona. Alveg ótrúlegt hvað það getur verið gott að heyra frá
reynslu annarra og gott að geta talað við einhvern sem virkilega
segir manni hreynt út hvernig hlutirnir eru. Ekkert að skafa ofan
Ópal, Tequila, Beep, Bjór, Jager og fleiru. Kvöldið endaði með því
að ég sat inni í 10-11 með Fjólu, ég að borða gúrku og hún að
drekka kaffi og borða nammið sitt sem hún keypti fyrir900krónur.
Einhverra hluta vegna keypti ég mér 6 tómata 1 gúrku og
Blönduósi. Við fórum á hjólinu hans og djöfull sem það var gaman
maður! eða alveg þartil hjálmurinn minn fór að bila. Glerið á
hjálminum bara þaut upp og ég alveg eins og hamstur í framan,
kynnarnar á fullu maður flappsandi fram og til baka... djísúss
kræsturinn maður!8| Við fengum okkur bjór og skelltum okkur í
heitapottinn þarsem ég náði að slasa mig á báðum fótum. Lennti með
vinstri fótinn ofan í holu og missteig mig, ætlaði síðan að bjarga
mér með að stíga í hægri en ekki vildi betur til en að ég steig
smá bjór og ég endaði með því að krassa þar. Djöfull áttu þæginlegt
Fyrsta færslan
bloggsíðum og svona. Fer sjaldnast inná síður annarra, nema kanski
hljóðkerfið farið af, og allt í volli að ég er alveg hrikalega
ónýmóðins og það eiginlega jaðrar við að það ség hægt að kalla mig
gamaldags. En þarna stóð ég eins og alger ónytjungur með eitthvert
apparat sem kallast ipot að reyna að koma tónlistinni á staðinn hjá
mér þegar einhver segir "prófaðu bara að hækka í'onum!" og ég horfi
á drasslið sem ég held á og bara hrissti hausinn og skil hvorki upp
né niður. Og þegar það kom til tals að ég bara hefði aldrei átt
svona ipotdrassl áður þá svoleiðis skelltust hökur samstarfsmanna
minna svo í gólfið að ég hafði áhyggjur af því að þeir væru nú bara
allir dauðir! Ég er allavega frekar ofarlega á hallærislistanum hjá
hallærislistann með því að stofna eins og eitt stykki bloggsíðu.
verið búið að taka titilinn blog.central.is/gaggy!!! Ég sem hélt að
ég væri sú eina sem væri kölluð þessu nafni:S -Það þarf allavega